GEISLABLOGG
Afþreying
03.12.2008 13:16:45 / louisa

jólí jólí jól

Litlu jólin!!

Thelma var að senda skilaboð á facebook, ákvað að henda þeim inn hér líka fyrir facebook-lausa. 
Minnum á litlu jól bekkjarins sem verða þriðjudaginn 9. des kl 20 heima hjá okkur Nönnu (hringið til að spurja um heimilisfang) . Dyrabjallan er biluð...svo þið þurfið að hringja ef þið viljið komast inn :)
Hugmyndin er að allir komi með smáræði í pakka (500-1000 kr) og eitthvað smáræði til að narta í eða drykki. Kannski ágætt að láta vita ef þið eruð búin að ákveða hvað þið ætlið að koma með, svo allir séu ekki að koma með það sama :)

» 10 hafa sagt sína skoðun

10.11.2008 15:33:43 / louisa

Litlu jólin!

Loks er komið að skipulögðum bekkjarhitting.  Við hittumst bara heima hjá Nönnu og Thelmu 9. des kl 8 og höfum gaman saman.  planið er að fólk komi með einn pakka (fyrir u.þ.b. 500-1000) og kannski eitthvað gott að borða.  fólk fékk skilaboð via facebook en þar sem Guðlaug, Maren og Oksana eru ekki með slíkt fá þær bara boð hér með.  Þannig að ef þið rekist á þær, minnið þið þær þá á það. 
Svo er bara að koma og skemmta sér!

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.10.2008 19:13:06 / klara

Snillingar

Vil bara minna á hvað Erla og Nanna eru miklir snillingar, vissum það nú alveg fyrir. Allir að mæta á röntgenhátíðina, sá auglýsingu inn á raferninum.

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.09.2008 22:03:14 / louisa

Bekkjarhittingur?

hvað segiði, er fólk ekki til í smá hitting?

» 7 hafa sagt sína skoðun

27.08.2008 15:49:45 / nanna

og það var stelpa

stelpa fædd í dag (ekki alveg með tíma á hreinu) en var 14 merkur og 3535 gr þetta eru bara fyrstu fréttir svo við vitum lítið annað

Kv Nanna og Thelma

» 9 hafa sagt sína skoðun

21.07.2008 13:24:22 / klara

Stelpa

Elsku Oksana innilega til hamingju með stelpuna

kv. Klara

» 9 hafa sagt sína skoðun

26.06.2008 12:42:16 / louisa

fréttablaðið í dag

ég var að skoða blaðið og rak augun í þessa fínu grein um hjúkrunafræðinga... en mér fannst eitthvað bogið við myndina. 

http://vefblod.visir.is/index.php?s=2144&p=57102

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.06.2008 11:05:14 / berglind

Forvitnin alveg að drepa mann

Hvernig fór þetta með samningana ?  Langar aðeins að fá að fylgjast með. Hef það stundum á tilfinningunni að ég sé stödd á eyju út á hafi neeeiii, segi svona.  Ég er svo nálægt en samt eitthvað svo langt í burtu.  En endilega leyfa mér að fylgjast með. Ragnheiður er í fríi þannig að ég heyri lítið frá henni.

Kveðja (knús,knús)
Berglind (Linda) á ís og tóbakstofunni (hehe)

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.06.2008 22:22:49 / disa

Hæ gæs

Það er hvít skál hjá mér sem ég kannast ekki við, getur verið að e-h hafi gleymt henni ;)

» 6 hafa sagt sína skoðun

30.05.2008 09:40:18 / thelma

Hittingur, taka 2

Þar sem eru komin svo mörg komment á færsluna fyrir neðan, ákvað ég að taka þetta bara saman í eina stutta færslu.

Hittingur verður föstudaginn 6. júní heima hjá Dísu, Dalseli 29, og er mæting kl: 20.

Mæta með sinn mat og drykk sjálfur og makar að sjálfsögðu velkomnir með :)

» 6 hafa sagt sína skoðun

25.05.2008 17:04:44 / louisa

hittingur

Halló öll.  jæja það virðist vera svona nett blandað sem við viljum gera saman eftir hálfan mánuð, eina sameiginlega er að við viljum greinilega borða.  ég frétti að Thelma væri til í að lána afnot af grillinu sínu (en þá mundum við hittast hjá henni og grilla það sem okkur finnst gott) og ég held að það væri frábært.  þá er spurningin hvort Thelma sé game í þetta?  eða vill fólk frekar láta elda fyrir sig og fara út að borða?  endilega kommentið hvað þið viljið gera og ef það er veitingastaður þá verðið þið að nefna stað.  svo ætla ég að setja nýja könnun í gang svo endilega svarið (við verðum nefnilega að ákveða hvorn daginn við hittumst)

» 19 hafa sagt sína skoðun

11.05.2008 21:29:37 / louisa

fyrst við erum búin að ákveða að hittast...

hvað eigum við að gera?  (ég setti inn könnun, er ekki viss um að hún hafi birst).  í fyrsta lagi þar sem tvær okkar eru á bakvakt (amk) þá verður þetta að vera í bænum.  þannig að eigum við að halda partý og verða bleindfull (fara jafnvel á trúnó ;-)   eða eigum við að fara saman út að borða?  eigum við að hafa kökuboð eins og síðustu tvö skiptin sem við hittumst?  eða eigum við að gera eitthvað allt annað (halda spilakvöld, gefa öndunum...).  og endilega kommenta (líka ef þið viljið/getið ekki komið.  (ath harpa, hjördís, guðlaug, berglind, dísa, maren og oksana hafa ekkert tjáð sig)

» 3 hafa sagt sína skoðun

05.05.2008 23:42:04 / louisa

það er að verða komið ár...

síðan við útskrifuðumst (suss hvað tíminn flýgur áfram).  er þá ekki alveg eðal að halda bekkjarhitting?  hvað segiði um helgina 5-6 júní (þá er ákkúrat ár)?  við getum meirað segja mætt í útskriftarfötunum ;)  um að gera að nýta þau (segi nú bara svona). 
er fólk game?

» 7 hafa sagt sína skoðun

28.04.2008 10:37:23 / nanna

Elsku Klara

innilega til hamingju með árin 26 hafðu það geggjað gott í dag snúllan mín:haha:
og já til hamingju með nýjan hundinn líka ;o)

þúsund kossar og knús
Kv Nanna

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 19
Klukkan